11.3.05

Risasteypa!!!
"Muniði þegar við ætluðum að fara út að hlaupa og hættum við? Nú er komið að því "(Gummi Torfa).
Jú það er rétt, það var komið að því. Framkvæmdir eru í fullum gangi og gaman að segja frá því að í morgun var gólfið í kjallaranum steypt og styttist því í innflutningspartý. Það er hins vegar ekki jafn gaman að segja frá því að eitthvert helvítis kattaróféti hefur komist í steypuna og sporað allt út. En það skiptir ekki máli, setur bara skemmtilegan svip á þetta.
Jæja best að fara að koma sér, kannski maður fari bara í klippingu, hjálmurinn er alveg upp á sitt besta um þessar mundir og kominn tími á að snyrta hann aðeins.
Idol í kvöld. Hildur Vala vinnur sennilega því Heiða verður ekki komin heim úr vinnunni fyrr en um níu og þá er keppnin byrjuð sko. Gamla...
Annars útnefni ég Stiftamtmanninn mann vikunnar á Internetinu. Alltaf gaman að sjá þegar hann lætur til sín taka á bloggsíðunum. Kepp up the good work!
Later!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home